Þau Aron Bjarkason, Freyja Stígsdóttir og Hannes Hermann Mahong Magnússon stóðu sig glæsilega á HEL Open í Helsinki í gær og unnu alls tvenn silfurverðlaun og tvenn bronsverðlaun.
Bestum árangri í gær náði Freyja, sem vann silfur í kata U18 ára og brons í kata U21 árs. Í undanrásum í U18 ára hlaut hún langhæsta einkunn allra keppenda og tryggði sig inn í úrslit. Þar mætti hún erkikeppinaut sínum hér á Norðurlöndunum, sænsku landsliðskonunni Matildu Skalare. Að þessu sinni hafði Matilda betur og Freyja tók því silfrið.
Í U21-flokki munaði svo aðeins 0,04 í einkunn (af 30 mögulegum) að Freyja ynni sinn riðil og kæmist í úrslit. Hún keppti svo um bronsið við Svíann Linnéu Hederström og vann hana auðveldlega, með 23,28 stigum gegn 21,94.
Hannes keppti í kumite U16 ára, +63 kg flokki. Í undanúrslitum vann hann Eistann Oskar Lepp og tryggði sér sæti í úrslitum. Þar mætti Hannes heimamanninum Ben Parikka. Eftir líflega viðureign hafði Finninn betur, 3–1, og var Hannes því silfurverðlaunahafi í flokknum. Þess má geta að þetta var fyrsta keppnisferð Hannesar á erlendri grund.
Aron Bjarkason keppti bæði í kumite og kata U21 árs. Í jöfnum og sterkum undanriðli munaði aðeins 0,26 stigum að Aron kæmist áfram í bronsviðureign í kata, en það varð ekki úr í dag. Í kumite -60 kg flokki hlaut Aron bronsverðlaun eftir bardaga við finnska og sænska unglingalandsliðsmenn.
Hannes, Freyja og Aron æfa öll með landsliðshópi Íslands í karate. Þau verða næst í eldlínunni á Reykjavíkurleikunum í Laugardalshöll 26. janúar ásamt fleiri öflugum keppendum úr Þórshamri. Freyja verður svo í liði Íslands á Evrópumeistaramótinu í kata í byrjun febrúar.
コメント